Sabor Latino
Kolaportið breytist í litríka suðræna upplifun þegar Sabor Latino fer fram helgina 9.–10. maí.
Á útisvæðinu við Geirsgötu verða 3 matarvagnar sem munu selja mat frá Venezuela, Kólumbíu og Mexíkó. Inní Kolaportinu verða nýjir sölubásar og kynning á Suður-amerískum vínum.
Við erum að byggja upp einstakan matar- og menningarviðburð þar sem áhersla er lögð á mið- og suðurameríska stemningu – fullt af litum, tónlist, dansi og lífi.
Á svæðinu verður:
Matarvagnar og fjölbreytt matarupplifun
Markaður með vörur, handverk og hönnun
Salsadansarar og lifandi stemning
Afþreying fyrir alla fjölskylduna
Piñata, andlitsmálning og skemmtun fyrir börnin
Glæsilegar skreytingar í anda hátíðarinnar