rekstur veitingastaðar í kolaportinu
Við óskum eftir rekstraraðila
Veitingastaður í Kolaportinu
Eitt glæsilegasta húsnæði fyrir veitingastað sem hægt er að hugsa sér í Reykjavík
Opið alla daga vikunnar
Stærð yfir 200 fermetrar með 6 metra lofthæð og frábæru útsýni.
Leiga: Veltutengd leiga
✅ Við erum einnig að leita að rekstraraðila fyrir
KOlaportið
nýjir tímar í kolaportinu
Nýir rekstraraðilar tóku við Kolaportinu síðasta haust og með þeim hófst nýr kafli í sögu þessa einstaka markaðar. Nýir rekstraraðilar, þeir Róbert Aron og Einar Örn, hafa meðal annars rekið Götubitahátíðina í Reykjavík og City Food Hall mathöllina í Stokkhólmi og hafa víðtæka og langa þekkingu af rekstri og veitingabransanum.
Róbert og Einar koma með ferska sýn á hvernig Kolaportið mun þróast og blómstra á komandi árum.
Fyrir jól 2025 var haldinn afar vel heppnaður jólamarkaður, Jólaportið, þar sem fjöldi nýrra söluaðila mættu í Kolaportið og gestir streymdu að í mun meira mæli en áður. Stemningin var lifandi, fjölbreytt og hugguleg.
Fram undan eru frekari breytingar sem munu gera Kolaportið að enn meira spennandi og líflegri áfangastað – bæði fyrir Íslendinga og ferðamenn sem vilja upplifa eitthvað ekta, óvænt og skemmtilegt í hjarta Reykjavíkur.
Veitingastaður
Við Geirsgötu bjóðum við uppá stórkostlega staðsetningu fyrir veitingastað.
Rýmið er yfir 200 fermetrar með 6 metra lofthæð. Gríðarstórir gluggar eru með útsýni yfir Hafnarbakkann og Esjuna.
Möguleikarnir eru endalausir. Veitingastaður, bar, tónleikar, veisluhöld.
Við viljum sjá veitingastað sem hefur opið alla daga vikunnar. Plássið í Kolaportinu býður líka uppá mikla möguleika þegar að kemur að viðburðarhaldi.
Í dag er veitingastaðurinn með litlu eldhúsi og klósettum, en þá aðstöðu þarf að bæta.
hafðu samband
Viltu vita meira?